edl.ecml.at/edlevents

Eflum tungumálanám

 Celebration, 25 sep 2025 - 25 sep 2025, Reykjavík, Island

Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands í samvinnu við STÍL (Samtök tungumálakennara á Íslandi), Rannís og Vigdísarstofnun stendur fyrir viðburði á Evrópska tungumáladeginum þ. 25. september n.k. Tungumálamiðstöð og Vigdísarstofnun hafa í langan tíma, með dyggum stuðningi Menntamálaráðuneytisins, haldið upp á Evrópska tungumáladaginn og boðið tungumálakennurum af öllum skólastigum til sín til að þakka þeim fyrir störf sín í þágu tungumálanáms og -kennslu á Íslandi. Í ár er haldið upp á 25 ára afmæli Evrópska tungumáladagsins og af því tilefni ætla Evrópska tungumálamiðstöðin (ECML) og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að birta sérstaka hvatningarstefnu (Motivation Manifesto) þar sem hvatt er til tungumálanáms (sjá nánari upplýsingar í meðfylgjandi dreifiriti). Yfirskrift þessa viðburðar í ár verður því „Eflum tungumálanám“ og höfum við fengið eftirfarandi aðila til að ræða um hvata í tungumálanámi út frá mismunandi sjónarhornum. Ásrún Jóhannsdóttir, aðjúnkt í ensku við HÍ flytur erindi um hvata hjá tungumálakennurum sem nefnist „Hvati í tungumálakennslu: áskoranir og tækifæri“. Donata Honkowicz Bukowska, sérfræðingur hjá mennta og barnamálaráðuneytinu fjallar um gildi tungumálanáms á tímum gervigreindar og hraðra tæknibreytinga í erindi sem hún nefnir „Þökk sé tungumálum er heimurinn ekki þögull“. Sigrún Freygerður Finnsdóttir, nemandi við HÍ mun svo tala um hvata frá sjónarhóli tungumálanema en hún hlaut einmitt Stúdentaverðlaun STÍL á þessu ári. Verðlaunin eru veitt fyrir einstakan áhuga og metnað í tungumálanámi. Erindi hennar nefnist „Í takt við tímann“.

Venue: Veröld - hús Vigdísar (Show On Map)
Target groups:  Researchers Language teachers Students Language experts General public

Organizer: STÍL, Tungumálamiðstöð, Rannís og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur
Estimated number of participants/people involved: 100
Address: Brynjólfsgata 1, 107, Reykjavík, Island
Contact Name: Eyjólfur Már Sigurðsson
Website: https://www.erasmusplus.is/frettir-og-vidburdir/frettir/evropski-tungumaladagurinn-2025-eflum-tungumalanam

Return to list of events   Edit this event  

20 ideja za ovogodišnji Evropski dan jezika

Mučiš se da nađeš ideje za ovogodišnji Evropski dan jezika? Organizacija događaja koji su zabavni i privlačni velikom broju ljudi, a opet imaju obrazovni element i motivišu, može biti izazov. Evo par ideja koje će inspirisati tvoju kreativnost, od kojih je većina zasnovana na principu „početi od manjeg da bi se stiglo do većeg“! 20 prijedloga za ovogodišnji Evropski dan jezika:

20 ideja za ovogodišnji Evropski dan jezika

Pogledaj stranicu

20 ideja za ovogodišnji Evropski dan jezika



Pogledaj stranicu

Glasajte za najinovativniji događaj godine!  

Da bismo dodatno začinili Dan, pozivamo sve posjetioce internet stranice da glasaju za najinovativniji događaj EDJ-a. Ovo može biti na osnovu njegove kreativnosti, prenosivosti ili samo jer uistinu predstavlja duh Dana. Glasanje će trajati mjesec dana - od 20. septembra do 20 oktobra, a pobjednici će biti objavljeni u decembru. Organizator događaja sa najviše glasova će dobiti malu nagradu.

Najinovativniji događaj 2024 godine je
Long live the European Day of Languages/ Vive la Journée européenne des langues

Događaj je zaradio preko 1900 glasova i upriličen je od strane Lycée Alfred Mézières de Longwy, France.

Čestitke pobjednicima!

Najviše smo impresionirani kreativnošću i velikom količinom uloženog truda u organizaciju događaja te se želimo zahvaliti svim organizatorima EDJ događaja u 2024 godini.